top of page

Leiðamerkingar

Merkingar leiða geta verið mismunandi eftir klifuraðstöðum. Við höfum kosið að nota einfalt leiðarkerfi sem gefur þér hugmynd um erfiðleikastig leiða. Leiðirnar eru merktar frá 1-9 þar sem leiðir í flokki 1 eru auðveldustu leiðirnar, svo hækkar erfiðleikastigið eftir því sem nr. hækka. Leiðir Nr. 9 eru þær erfiðustu í salnum. Það geta verið margar leiðir í hverjum númeraflokki. 

Merkingar

600sept (4 of 241)_edited.jpg
IMG_4288_edited.jpg
IMG_4279.jpeg
11-DSC06671.jpg
Hvernig finn ég klifurleið? 
  • Öll gripin í einni klifurleið eru eins á litin.

  • Leið hefur byrjunar grip og endagrip sem eru merkt.

  • Erfiðleikastig leiðar er merkt með númerum frá 1 - 9.

  • Leiðir merktar level 1 eru léttustu leiðirnar í salnum, level 2 næst léttustu ... Leiðir merktar með 9 eru erfiðustu leiðirnar. 

  • Það er auðvitað öllum frjálst að hundsa leiðirnar og klifra frjálst á veggnum

Byrjunargrip
  • Leið getur byrjað á einu gripi eða tveimur.

  • Byrjunargrip er merkt með tölu frá 1-9 (erfiðleikastigi leiðar).

  • Leið með eitt byrjunargrip er með eitt merki með tvær hendur á merkinu. Það þýðir að byrja skal með tvær hendur á sama gripinu. 

  • Leið með tvö byrjunargrip hefur tvö merki með sama nr. og eina hendi á hvoru merki.

  • Til að finna byrjunargrip í leið með tvö grip er gott að horfa eftir merki með sömu tölu við sama lit af gripi.

Endagrip
  • Endagripið er merkt með sömu tölu og byrjunargripin (segir til um erfiðleikastig leiðar) 

  • Merkin við endagripin eru mun stærri en byrjunarmerkin og auðséð.

  • Ef leitað er af leið í ákveðnu erfiðleikastigi (leveli) er gott að horfa eftir merkinu við endagrip, finna lit leiðar og finna svo byrjunarmerkingarnar útfrá því. 

Húsreglur

Almennar reglur 
  • Allir eru á eigin ábyrgð í 600 Klifur, verum ábyrg og skynsöm.

  • Berum virðingu fyrir fókinu og hlutunum í kringum okkur.

  • Við biðjum ykkur að skilja útiskó eftir í forstofunni. 

  • Matur og drykkir eru aðeins leyfðir í kaffiteríunni, nema lokaðar vatnsflöskur.

  • ​Starfsfólk er á staðnum og tilbúið að hjálpa en bera ekki ábyrgð á öryggi gesta né vaktar það salina. 

  • Höldum dýnum hreinum, ekki er leyfilegt að hafa kalkpoka uppi á dýnunum. 

  • Æfum okkur að lenda á dýnu úr mismunandi hæð og af öryggi á meðan verið er að venjast þeim. 

  • Allir þurfa að klifra í klifurskóm. Bannað að klifra á tánum.

  • Stranglega bannað að hlaupa um og hoppa á dýnunum.

  • Aldrei ganga undir þá sem eru að klifra því að þeir gætu dottið niður eða stokkið fyrirvaralaust og lent á ykkur.

  • Öryggismyndavélar eru á staðnum og á upptöku. 

  • Starfsfólk hefur leyfi til að vísa fólki á dyr fyrir að brjóta reglur eða sýna af sér óæskilega hegðun. 

Börn
  • Börn 12 ára og yngri skulu alltaf vera í fylgd með fullorðnum. 

  • Börn eru á ábyrgð forráðamanns.

  • Aldurstakmark í Stóra sal er 13 ára. 8-12 ára börn með klifurreynslu geta skráð sig á stutt námskeið/mat og fengið klifurskírteini. Með klifurskírteini og í fylgd fullorðins einstaklings mega 8-12 ára klifra í stóra salnum.

  • Þeir sem hafa náð 13 ára aldri mega vera á eigin ábyrgð í Stóra salnum en verður vísað inn í Litla sal ef reglum er ekki framfylgt.

  • Minnum börnin á að krakkasvæðið er þeirra leiksvæði og hvetjum þau til að ganga vel um dótið.

  • Minnum börn á að fara ekki útaf krakkasvæðinu án þess að vera í fylgd fullorðins.

Líkamsrækt 
  • Aldurstakmark í líkamsræktarsal er 13 ára. 

  • Ef að yoga salurinn er laus er velkomið að nota hann fyrir teygjur og hverskyns hreyfiþjálfun. 

  • Skilum alltaf lóðum og búnaði aftur á réttan stað eftir notkun.

  • Þurrkum af búnaði eftir notkun.

  • 24/7 aðgangur veitir eingöngu aðgang að  líkamsrækt, stranglega bannað að klifra eftir lokun.

  • Ekki skal fara á eftir hæðina eftir lokun.

  • Ef upp kemst um brot á reglum er 24/7 aðgangur afturkallaður og kort tekið úr gildi.  

Línuklifur
  • Ekki er leyfilegt að klifra í línuklifurveggnum nema í fylgd starfsmanns 600Klifur eða klifrara með gilt línuklifurkort. 

Staðsetning

Dalsbraut 1

600 Akureyri

(gengið inn að ofan og aftan)

Hafðu samband

Sími: 8634606

tölvupóstur: klifur@600north.is

Opnunartímar

Samfélagsmiðlar

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page