top of page
DSC04424.JPG

Afmæli

Hægt er að bóka Litla sal fyrir afmælisveislur. Salurinn er lokaður almenningi á meðan að afmælið stendur yfir og hafa því krakkarnir heilmikið pláss útaf fyrir sig. Margar klifurleiðir eru í boði, göng og rennibraut, leyniherbergi og stórt dýnusvæði. 

Hægt er að bóka afmæli á fyrirfram skipulögðum tímum. Þau byrja á heila tímanum og hefur hópurinn klifursalinn í klukkutíma. Eftir það er hópnum velkomið að fá herbergið á efri hæðinni í hálftíma fyrir veitingar. 

Í boði er að bóka afmæli á:

þriðjudögum kl. 17.00 og 18.00 

sunnudögum kl. 15.00, 16.00 eða 17.00

Verð: 27.000 kr. 

Innifalið í verðinu er klukkutími í Litla klifursal, 30 mín. í veitingasal, klifurskór og stutt sýnikennsla frá klifurleiðbeinanda.

Hámarksfjöldi: 25 - 30

 

Fyrirspurnir má senda á bokanir@600north.is

Skilyrði og reglur

Vinsamlegast kynnið ykkur afmælisreglur í Litla sal og veitinga herbergi:

 

  • Leigutaki skilar salnum af sér eins og hann tekur við honum, sópar, hendir rusli, þurrkar af borðum og skilar viðbótar stólum og borðum.

  •  Skilyrði að það sé a.m.k. einn fullorðinn einstaklingur (eldri en 18 ára) á hver 10 börn í klifursalnum.

  •  Leigutaki ber fulla ábyrgð á þeim einstaklingum sem eru á hans vegum í 600 Klifur.

  • Gætið vel að börnunum því auðvelt er að slasa sig ef ekki er farið varlega og eftir reglum.

  • Leigutaki er ekki með báða salina í einu heldur leigir hann klifursalinn fyrsta klukkutímann og veitingasalinn seinni hálftímann, þannig að börn og forráðamenn þurfa að færa sig saman milli sala.

  • Gefnar eru 15 mínútur í undirbúning fyrir veitingasalinn.  Það er því opnað þangað inn 45 mín. eftir að veisla hefst.

  • Við biðjum ykkur að sýna öðrum hópum tillitssemi og virða tímamörkin.

  • Hleypt er inn í klifursal frá þeim tíma sem leigt er.

  • Leigutaki kemur með eigin borðbúnað og veitingar t.d pizzur eða köku.

Staðsetning

Dalsbraut 1

600 Akureyri

(gengið inn að ofan og aftan)

Hafðu samband

Sími: 8590600

tölvupóstur: klifur@600north.is

Opnunartímar

Samfélagsmiðlar

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page