top of page

Um okkur

600Klifur x 600Norður

600Klifur er rekið af félaginu 600Norður sem á rætur sínar að rekja til Akureyrar en fyrir þá sem ekki vita er talan 600, póstnúmar á Akureyri.

Félagið var stofnað árið 2017 með það markmið að efla útivist og fjallamennsku á Íslandi, út frá Norðurlandi, bjóða upp á leiðsögn, stuðla að nýsköpun og styðja við íþróttastarf.

 

Nokkur verkefni hafa verið unnin í átt að þessu markmiði, s.s Sigló Freeride, KEAx600Norður fjallaskíðanámskeið, uppbygging klifursvæða á Íslandi, klifuraðstaða á Hjalteyri og klifurveggir í skólum.

Stærsta verkefnið hingað til er ný og glæsileg klifuraðstaða

600Klifur á Akureyri.

 

Á bak við félagið stendur öflugur hópur Fjallaleiðsögumanna með brennandi áhuga á útivist af ýmsum toga, auk þess að búa að fjölbreyttri reynslu á öðrum sviðum. Má þar nefna viðskiptafræði, smíðar, íþróttastarf barna og unglinga, kennslu og námskeiðshald tengd fjallamennsku.

600Klifur hóf starfsemi sína í nýju og glæsilegu húsnæði á Akureyri

11.október 2025

Frábær umfjöllun um 600Klifur í Ísland í dag 

Screenshot 2026-03-19 at 10.16.39.png

Staðsetning

Dalsbraut 1 600 Akureyri

Sama húsnæði og Bakaríið við Brúna (ath. google maps sendir ykkur á vittlausan stað!)

Hafðu samband

Sími: 8590600

tölvupóstur: klifur@600north.is

Opnunartímar

Samfélagsmiðlar

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page