top of page

Leiðsluklifurnámskeið

​Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa áhuga á að læra línuklifur og að tryggja aðra í línu. Farið er í grunnatriði í ofanvaðsklifri (e. toprope) og leiðsluklifri (e. lead climbing). Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem nú þegar hafa einhverja þekkingu en vilja bæta sig. 

Í kjölfar námskeiðsins er hægt að skrá sig í línuklifurpróf. Með því að standast prófið fær próftaki línuklifurkort sem er forsenda þess að nota línuklifurvegginn okkar sem og aðra veggi á Íslandi.

Við útvegum allan búnað svo sem klifurbelti, klifurskó, tryggingartól og fleira. Við mælum með að koma með eigin búnað og læra á hann ef þið eigið. 

ATH. Kennt er á Grigri og einungis má taka prófið á Grigri.

​Námskeiðið er 3 skipti.

Kennt þriðjudag, miðvikudag og föstudag

kl. 19.30 - 21.30

Næsta námskeið: 

24. - 25. og 27. febrúar

Verð 27.000 kr.

IMG_4059.jpeg

Helstu upplýsingar

  • Farið er yfir hvaða búnað þarf til til að stunda línuklifur og öryggisatriði er varðar búnaðinn og notkun hans.

  • Almenn öruggisatriði og klifurvenjur í línuklifri.

  • Kennsla varðandi að detta í línu og að grípa fall sem tryggjari.

  • .. og margt fleira

  • 18 ára aldurstakmark á bæði námskeið

  • Innifalið í námskeiðgjaldi er eitt próf sem bóka þarf sér.

  • Allur búnaður er innifalinn, einnig leiguskór.

Við bendum þeim sem vilja byrja á einfaldara námskeiði og læra einungis að klifra

og tryggja í ofanvaði að skoða Námskeið í ofanvaðsklifri. 

Staðsetning

Dalsbraut 1

600 Akureyri

(gengið inn að ofan og aftan)

Hafðu samband

Sími: 8590600

tölvupóstur: klifur@600north.is

Opnunartímar

Samfélagsmiðlar

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page