Línuklifurkort gefið út af Klifursambandi Íslands þarf til að mega nýta aðstöðu 600Klifur og annara línuklifurveggja Íslands.
Til þess að fá kort þarf að standast próf í samræmi við regluverk KÍ. Hægt er að taka prófið hjá 600Klifur ef þú telur þig vera tilbúinn.
Ath. Prófuð er þekking og færni í að tryggja, ekki klifurfærni.
Tvö línuklifurkort eru gefin út af Klifursambandi Íslands. Línuklifurkort ofanvaðs og línuklifurkort í leiðsluklifri.
Prófið
Prófdómari á vegum 600Klifur sem er viðurkenndur af Klifursambandi Íslands sér um prófin sem taka um 20 mínútur. Prófin eru í samræmi við regluverk KÍ varðandi prófskírteini fyrir línu- eða leiðsluklifur.
Prófið kannar þekkingu og færni í að tryggja, próftaki þarf því að koma með félaga sem getur klifrað fyrir hann.
Oft koma klifurfélagar og taka prófið saman, skiptast þá á að klifra og tryggja. Ef tveir klifrara taka prófið saman skal bóka tvö pláss á eftir hvort öðru (samtals 40 min.).
Upplýsingar
-
Við mælum með að klifrarinn mæti með eigin búnað í prófið en einnig er hægt að leigja.
-
Eingöngu er tekið próf á sjálflæsandi tryggingartól t.d GriGri. Ekki má nota ATC eða túbu
-
Hér má nálgast upplýsingar um próftökuna: Línuklifurskort KÍ
-
Að prófi loknu skal klifrarinn ásamt prófdómara skrifa undir skilmála kortsins. Þá yfirlýsingu má finna hér: Skilmálar línuklifurskorta
Leiðslu- eða ofanvaðsklifur
Tvö línuklifurkort eru gefin út af Klifursambandi Íslands. Annarsvegar línuklifurkort ofanvaðs og línuklifurkort í leiðsluklifri. Þegar þú velur um hvort kortið þú sækist eftir er gott að hafa í huga eftirfarandi. Línuklifurprófið í ofanvaði er auðveldara og einfaldara og hentar byrjendum. Línuklifurprófið í leiðsluklifri er erfiðara og gerir meiri kröfur um kunnáttu.
Öryggisstaðlar
Til þess að klifra í háum veggjum þarf öryggisbúnað og þekkingu. Línuklifurkort gefið út af Klifursambandi Íslands þarf til að mega nýta aðstöðu 600Klifur og annara línuklifurveggja Íslands. Kortið staðfestir þekkingu þess sem hefur það. Slík kort eru besta leið klifurhúsa að tryggja öryggi gesta og eru því algengt skilyrði.