Íþróttastefna
Fyrstu æfingar 600Klifur byrja 2026. Markmið allra hópa er að hefja barna- og unglingastarf í klifuríþróttinni á Akureyri. Klifur er sérsamband inn í ÍSÍ, Klifursamband Íslands. Æfingardagskrá og áherslur eru miðaðar að því að stýra íþróttinni á Akureyri inn í það að á næstu árum geti einstaklingar haft möguleika á keppnum og æfingum í keppnisumhverfi. Á okkar fyrsta ári í skipulögðum æfingum er áherslan breiðari og hentar öllum áhugasömum. Á fyrstu önn fá allir hópar grunn í grjótglímu, línuklifri, keppnisklifri og útiklifri. Leikur er mikilvægur þáttur allra og sérstaklega yngri hópa. Allir hópar fá tækifæri á að prófa keppnisviðburð við hæfi eftir aldri. TeamA1/A2 fer í keppnisferð suður, á eitt mót valið úr dagskrá KÍ. Stefnt er að gefa öllum hópum tækifæri á að prófa útiklifur a.m.k einu sinni þegar vorar. Aðalmarkmið er að iðkendur og foreldrar kynnist klifri og geti valið til framtíðar að klifra. Fyrstu æfingar byrja vikurnar 19.janúar og 27.janúar, eftir hópum.
Frekari upplýsingar um hópana má finna inni á Sportabler