
Sumarnámskeið 600Klifur
Við bjóðum upp á skemmtilegt leikjanámskeið í sumar þar sem krakkarnir fá að njóta þess að klifra og fara í allskyns þrautir og leiki í húsnæði 600Klifur. Við opnuðum nýtt og glæsilegt klifurhúsnæði í október í fyrra sem er bæði rúmgott og býður upp á mjög fjölbreytt starf. Húsið opnar ekki fyrren kl. 11 á daginn fyrir almenning svo að krakkarnir hafa mikið frelsi og pláss á meðan á námskeiði stendur.
Megináherslur námskeiðsins er leikur, gleði, klifur og hópefli
Farið verður í allskyns klifur og hreyfifærni leiki, kennsla í að hnýta hnúta og prófa að nota allskyns klifurbúnað. Boðið verður upp á línuklifur, frjálst klifur, þrautabrautir og útiveru ef veður leyfir. Krakkarnir hafa aðstöðu í salnum á efri hæðinni til að geyma dótið sitt, borða nesti og eiga rólegri stund með föndur og spil. Við endum svo síðasta dag námskeiðsins á pylsupartýi og kveðjugjöf.
Fyrir hvern: Börn á aldrinum 6-11 ára
(fædd 2015-2020). Þeim verður skipt upp í hópa eftir aldri og getu.
Hvenær: Kennt er 4 daga í viku frá kl. 9-12
Val um fjórar vikur:
15.-19 júní (ekki kennt miðvikudaginn 17.júní)
22.-25. Júní
29.júní-2.júlí
20.júlí-23.júlí
Verð: 21.000kr.
*Veittur er 20% systkinaafsláttur
(reiknast af námskeiðsgjaldi hjá seinna systkininu sem er skráð)
Mikilvægt er að börnin komi með nesti og í léttum og þægilegum fatnaði.
Námskeiðið fer fram í 600Klifur, Akureyri.
Aðalleiðbeinandi og umsjónarmaður: Kata Kristjánsdóttir
Skráning hefst bráðlega inni á abler
Skilmálar:
-
Ef lágmarksþátttaka næst ekki 3 dögum fyrir námskeið þá áskilur 600Klifur sér rétt að fella niður
námskeiðið og þátttökugjald verður endurgreitt. -
Ef hámarksþátttöku er náð þá er hægt að skrá börnin á biðlista á abler
-
Áður en námskeið hefst skal forráðamaður skrifa undir skilmála og skilyrði 600Klifur fyrir barn/börn.
-
Ætlast er til þess að farsímar séu geymdir í töskum
-
Ef barn brýtur ítrekað reglur eða sýnir ósæmilega hegðun, áskiljum við okkur rétt til að vísa því frá námskeiðinu. Í slíkum tilvikum eru eftirstöðvar námskeiðsgjalda ekki endurgreiddar.
-
Ef barn þarfnast almennt stuðnings eða umönnunaraðila, er gert ráð fyrir að umönnunaraðili fylgi barninu og sé til staðar á meðan námskeiðið fer fram.



