top of page

Námskeið í ofanvaðsklifri

​Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa áhuga á að læra ofanvaðsklifur og að tryggja aðra í ofanvaði. Farið er í grunnatriði í ofanvaðsklifri (e. toprope) og hentar námskeiðið vel fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í línuklifri.

Í kjölfar námskeiðsins er hægt að skrá sig í línuklifurpróf í ofanvaði. Með því að standast prófið fær próftaki línuklifurkort sem er forsenda þess að nota línuklifurvegginn okkar. Ath. með korti í ofanvaðsklifri er einungis hægt að klifra í línuklifurveggjum 600Klifur. Krafa um leiðsluklifurkort er gerð í línuklifurveggnum í Miðgarði fyrir sunnan þar sem engar línur eru í akkerum þar.

Við útvegum allan búnað svo sem klifurbelti, klifurskó, tryggingartól og fleira. Við mælum með að koma með eigin búnað og læra á hann ef þið eigið. 

​Námskeiðið er 2 skipti.

Kennt þriðjudag og miðvikudag

kl. 19.30 - 21.30

Næsta námskeið: 

3. - 4. mars

250910-_DSC4344.jpg

Verð: 20.000kr.

Staðsetning

Dalsbraut 1

600 Akureyri

(gengið inn að ofan og aftan)

Hafðu samband

Sími: 8590600

tölvupóstur: klifur@600north.is

Opnunartímar

Samfélagsmiðlar

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page