Leiðsluklifurnámskeið
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa áhuga á að læra línuklifur og að tryggja aðra í línu. Farið er í grunnatriði í ofanvaðsklifri (e. toprope) og leiðsluklifri (e. lead climbing). Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem nú þegar hafa einhverja þekkingu en vilja bæta sig.
Í kjölfar námskeiðsins er hægt að skrá sig í línuklifurpróf. Með því að standast prófið fær próftaki línuklifurkort sem er forsenda þess að nota línuklifurvegginn okkar sem og aðra veggi á Íslandi.
Við útvegum allan búnað svo sem klifurbelti, klifurskó, tryggingartól og fleira. Við mælum með að koma með eigin búnað og læra á hann ef þið eigið.
ATH. Kennt er á Grigri og einungis má taka prófið á Grigri.
Námskeiðið er 3 skipti - 2,5 tímar í senn
Kennt: kl. 19:30-22 mánudag, þriðjudag og miðvikudag
Næsta námskeið:
16.-18. nóvember 2026
Verð 27.000 kr.

Helstu upplýsingar
-
Farið er yfir hvaða búnað þarf til að stunda línuklifur og öryggisatriði er varðar búnaðinn.
-
Almenn öruggisatriði og klifurvenjur í línuklifri.
-
Kennsla varðandi að detta í línu og að grípa fall sem tryggjari.
-
Lærum að nota búnaðinn á öruggan hátt
-
Innifalið í námskeiðgjaldi er eitt línuklifurpróf (kostar sér 4500kr.)
-
Allur búnaður er innifalinn, einnig leiguskór.
-
Mæta verður öll kvöldin og er lágmarksskráning á námskeiðið 6 manns. Ef full skráning næst ekki verður námskeiðið fellt niður.