Línuklifur
Til þess að klifra í háum veggjum þarf öryggisbúnað og þekkingu. Línuklifurkort gefið út af Klifursambandi Íslands þarf til að mega nýta aðstöðu 600Klifur og annara línuklifurveggja Íslands. Kortið staðfestir þekkingu þess sem hefur það. Slík kort eru besta leið klifurhúsa að tryggja öryggi gesta og eru því algengt skilyrði. Hjá 600Klifur getur þú fengið kortið, þekkinguna og búnaðinn. Hægt er að velja milli tveggja leiða. Ofanvað eða leiðsluklifur.
Ofanvað & Leiðsluklifur
Tvö línuklifurkort eru gefin út af Klifursambandi Íslands. Annarsvegar línuklifurkort ofanvaðs og línuklifurkort í leiðsluklifri. Þegar þú velur um hvort kortið þú sækist eftir er gott að hafa í huga eftirfarandi.
Ofanvaðsklifur er auðveldara og einfaldara fyrir bæði klifrara og tryggjara.
Leiðsluklifur þarfnast meiri skilnings og færni og er jafnframt staðallinn í keppni og útiklifri meðal reyndra klifrara.
Algengt að byrjendur byrji á að klifra í ofanvaði. Leiðsluklifur byggir á sama grunni en er mikið meira krefjandi. Hafi einstaklingur leiðsluklifurkort er hann því jafnframt með ofanvaðspróf og er það sjálfkrafa. Í eðli sínu sé hann enda þeim mun hæfari. Prófdómari á vegum 600Klifur sem er viðurkenndur af Klifursambandi Íslands sér um prófin sem taka um 30 mínútur. Prófin eru í samræmi við regluverk KÍ varðandi prófskírteini fyrir línu- eða leiðsluklifur.
Tvö línuklifurkort eru gefin út. Annarsvegar línuklifurkort ofanvaðs og línuklifurkort í leiðsluklifri. Línuklifurprófið í ofanvaði er auðveldara og einfaldara og hentar byrjendum. Línuklifurprófið í leiðsluklifri er erfiðara og gerir meiri kröfur um kunnáttu.
Námskeiðið okkar í ofanvaði er jafnframt styttra og ódýrara en leiðsluklifurnámskeið.
Þekkingin
600Klifur bíður upp á námskeið fyrir þá sem vilja fá hnitmiðaða kennslu sem miðar að því að ná línuklifurprófi. Þeir sem kunna og hafa þekkinguna nú þegar geta farið strax í próf.
Línuklifurkortið
Til þess að fá kort hjá okkur þarf að standast próf í samræmi við regluverk KÍ varðandi prófskírteini fyrir ofanvaðs- eða leiðsluklifur. Hægt er að taka prófið hjá 600Klifur ef þú telur þig vera tilbúinn.
Búnaðurinn
Staðalbúnaður línuklifrara er belti, tryggingartól og klifurlína. Hægt er að leigja allan búnað hjá okkur og einnig er hægt að kaupa búnað hjá okkur og fá ráðleggingar.
Línuklifur
Í línuklifri er klifurlína notuð til þess að tryggja öryggi. Hlutverk línunnar er að passa að sá sem klifrar hátt uppi detti ekki á jörðina. Aðferðin að klifra með línu krefst tveggja þátttakenda og klifrar annar aðilinn upp meðan að hinn tryggir (öryggið) niðri. Þeir geta síðan skipt. Bæði klifrarinn og tryggjarinn þurfa að vera í klifurbelti og festa línuna í beltið sitt. Klifrarinn hnýtir sig í beltið og tryggjarinn festir línuna í beltið sitt í gegnum tryggingartól. Eftir því sem klifrarinn hreyfir sig, meðhöndlar tryggjarinn línuna í gegnum tryggingardól. Tryggingartólið gerir tryggjara kleift að bremsa og síga þeim sem klifrar þegar hann dettur eða vill koma niður.
Með þekkingu í línuklifri opnast á mikla möguleika. Þú getur klifrað lengri og hærri leiðir í klifurhúsum með línuveggi. Fjölmörg útiklifursvæði eru á Íslandi og erlendis þar sem klifrað er í línuklifri (e. sport climbing) í klettum! Lykillinn af útiklifri í klettum er að læra á línuklifur.